Athugaðu, opna í nýjum glugga. Senda í tölvupóst

Smokkur.is er umboðsaðili ONE (Global Protection Corp) á Íslandi.

1987 er ekki ár sem margir hugsa um sem upphaf af ákveðnum breytingum. En þegar Davin Wedel stofnandi og forstjóri Global Protection Corp heyrði frá C. Everett Koop yfirskurðlækni að notkun smokka hindraði útbreiðslu HIV þá vildi hann leggja sitt af mörkum í baráttunni. Á þeim tíma var það að verða meira og meira ljóst að AIDS var að verða risa heilsufaraldur og Koop boðaði opinberlega að notkun smokksins myndi hindra útbreyðslu sjúkdómsins. Þetta var stórt skref framávið, við að vekja fólk til umhugsunar um AIDS, en vandamálið var komið til að vera. Smokkar voru óvinsælir, neyðarlegt að kaupa og þjóðfélagslegt tabú.

Augljóslega þurfti smokkurinn á hjálp að halda við að bæta ímyndina. Davin nemi í Tuft háskóla og bekkjarfélagi hans opnuðu augu samnemenda sinna um öruggt kynlíf með „Happy Jumbo“ í blaði skólans þar sem var m.a. lukkudýr skólans, fíllinn Jumbo og slagorðið „ A safe Jumbo is a happy Jumbo“ Þeir félagarnir áttuðu sig á því að tengja smokkinn við vinsælar ímyndir gerðu smokkinn þannig svalann. Góður árangur í skólanum og á heimavistinni sannfærðu þá að fara með hugmyndina út fyrir skólann og árið 1988 varð til fyrirtækið Global Protection Corp.

Markmið fyrirtækisins var að gera smokkinn aðgengilega og sjálfsagðan hlut í daglegu lífi fólks með ýmsum frumlegum nýjungum. Global Protection fann upp og fyrsta frumlega og skemmtilega smokkinn sem lýsti í myrkri og smokka sleikjó. Fyrirtækið sannfærði verslanir, smásala og gjafaverslanir að selja þeirra vörur og hafa þeirra vörur áberandi í hillum sínum. Í fyrsta sinn gat fólk farið að skoða vöruna með góðu aðgengi og smokkar ekki aðeins afgreiddir yfir borðið eða upp úr skúffum. Global Protection framleiðir einnig sérframleidda smokka sem er kynningarefnis framleiðslulína, það gerir það að verkum að fyrirtæki geta fengið sínar eigin umbúiðir með ýmsum skilaboðum og eigin logo á ýmsar umbúðir. Fyrirtæki notuðu allskonar snjöll slagorð eins og „Stay virus free with Computer 2000“ til að kynna sig á meðan þeir komu einnig þeim jákvæðu skilaboðum áleiðis að stunda öruggt kynlíf. Global Protection sérframleiddu smokkarnir gerðu það kleift og mögulegt fyrir alla frá útvarpsstöðvum til flutningsfyrirtækja að taka þátt í jákvæðum áróðri í að stunda öruggt kynlíf.

Fyrirtækið vann líka hörðum höndum að kynningum og fræðslu til almennings um að stunda öruggt kynlíf. Heilbrigðisstofnanir, skólar os.frv. notuðu og tóku þátt í að nota Global Protection smokkana og vörurnar sem ísbrjót í að fá fólk til að slaka á og fá unglinga sem og fullorðna til að finnast auðvelt að tala um smokkinn og ábyrgðina sem fylgir því að stunda kynlíf. Í dag eru vörur Global Protection notaðaðar í heilsu og skólageiranum um allt og eru álitin nauðsynleg kennslutæki.

Uppúr 1992 var smokkurinn orðinn miklu sjálfsagðari og samþykktur af almenningi og þjóðfélaginu. Global Protection var þá tilbúið til að fara enn lengra og opnaði Condomania, fyrsta búðin sem seldi aðeins smokka. Mikil umfjöllun var um opnun búðanna í útvarpi, sjónvarpi og blöðum sem hjálpaði Global Protection gríðarlega í að kynna nauðsyn þess að nota smokkinn og vekja almenning til umhugsunar.

Margt hefur breyst síðan baráttan hófst í háskólanum með Jumbo. Global Protection vörurnar hafa hjálpað gríðarlega í að breyta áliti almennings á notkun smokksins. Einkafyrirtæki hafa og geta lagt mikið af mörkum í kynna mikilvægi þess að nota smokkinn og stunda öruggt kynlíf. Þessi gildi og markmið sem fyrirtækið setti sér í byrjun eru enn grunnurinn á starfsem Global Protection Corp.

Sjá nánar á heimasíðu Global Protection Corp. www.globalprotection.com